Megináherslur í tækni- og leikfræðiþjálfun:
Tækni
Spyrnur
Áhersla á fjölbreyttar spyrnur, úr kyrrstöðu og á ferð, af jörðu og á lofti, með og undir pressu frá mótherja og í framhaldi af gabbhreyfingum og snúningum. Megináhersla á innanfótarspyrnur og markskot. Enn fremur spyrnu með höfði.
Móttaka knattar
Áhersla á fjölbreyttar aðferðir við að móttaka knött, með jörðu og á lofti (með fæti, læri, brjósti og höfði), bæði án og undir pressu frá mótherja. Enn fremur móttaka og markskot.
Knetti skýlt
Áhersla á aðferðir við að skýla knetti, ýmist án eða undir pressu frá mótherja. Hluti þessa er kennsla að nota líkamann í návígjum, m.t.t. stöðu hans. Enn fremur með markskoti í framhaldi.
Knattrak
Áhersla á viðurkenndar aðferðir við knattrak, með innanverðum fæti, utanverðum fæti og rist, bæði með því að horfa á knött og með því að líta af knetti og taka gabbhreyfingu í framhaldi af knattraki og síðan með markskoti.
Grunntækni
Að venjast knetti. Markmið að bæta fyrstu snertingu.
Mýkt
Áhersla á æfingar er ganga út á að lyfta knetti úr kyrrstöðu eða við jörðu, þ.á m. í framhaldi af sendingu, sem og að „drepa“ knött úr frjálsu falli. Markmið að auka samhæfingu.
Taktur og samhæfing
Áhersla á hraðar fótahreyfingar, þ.á m. á víxl, bæði úr kyrrstöðu og á ferð, aftur á bak, áfram og á hlið. Æft t.d. með því að líta af knetti. Markmið að auka samhæfingu.
Jafnvægi
Áhersla á æfingar þar sem unnið er á öðrum fæti, bæði úr kyrrstöðu og á ferð.
Að gera tvennt í einu
Áhersla á æfingar þar sem unnið er með tvo knetti og megináhersla er á að losa sig við knött og taka á móti á því sem næst sama augnabliki. Markmið samhæfing og hröð hugsun.
Gabbhreyfingar
Áhersla á fjölda gabbhreyfinga sem auðkenndar eru með tilteknu heiti. Gert bæði úr kyrrstöðu, á ferð og gegn mótherja. Markmið að geta beitt fjölbreyttum gabbhreyfingum í stöðunni maður gegn manni.
Snúningar
Áhersla á mismundi snúninga sem auðkenndir eru með tilteknu heiti. Megináhersla á 180 gráðu snúninga. Markmið að breyta um stefnu með stjórn á knetti, þ.m.t. í stöðunni maður gegn manni.
„Knatt-freestyle“
Áhersla á ýmsar „knatt-freestyle“ æfingar, s.s. að stöðva knött á höfði og á hnakka, halda knetti milli sköflungs og ristar o.fl. Hefur einkum að markmiði að auka sjálftraust iðkenda.
Leikfræði
Leikfræði hóps
Um er að ræða bæði leikfræði varnar- og sóknarleiks. Megináhersla á að vinna í fámennum hópum, s.s. 1:1, 1:2, 2:1, 2:2 o.s.frv. Áhersla á að kenna atriði þessi í gegnum leikinn, þá einkum smáleiki („small sided games“). Markmið æfinganna er kennsla í undirstöðuatriðum liðssamvinnu, bæði í sókn og vörn, s.s. gæsla svæðis, lokun svæðis, aðstoð við samherja, völdun samherja, fríhlaup, hreyfing og vídd, opnun svæða, framhjáhlaup, veggspil, úrvinnsla návígja og stöðuskipti.
Áhersla á skipulag varnarleiks, þ.e. að iðkendur kunni skil á grunnstöðu varnar og séu að auki nokkurn veginn í stakk búnir til að leika maður gegn manni, grunnatriði í svæðisvarnarleik og blandaðan varnarleik, og/eða hið minnsta þekki á því mun. Leikvelli skipt upp í mismunandi svæði.
Markskot
Áhersla á markskot af ýmsum toga, með eða án samherja/mótherja, eftir móttöku á hlaupum (hraðri ferð) og á þröngu svæði, eftir eina eða tvær snertingar, viðstöðulaust frá jörðu eða á lofti, eftir framhjáhlaup og knattvíxlun.
Föst leikatriði
Áhersla á föst leikatriði, s.s. innköst, hornspyrnur og aukaspyrnur, bæði í varnar- og sóknarleik.
Þjálfun markvarða
Hluti leikfræðiþjálfunar er þjálfun markvarða, sem samtvinnuð skal öðrum æfingum. Meginhluti æfinga markvarða er að grípa knött yfir höfði í kyrrstöðu og með uppstökki, kýla knött með annarri og báðum höndum, grípa knött eftir að hafa kastað sér, spyrna knetti frá marki, hoppspyrna og kasta knetti frá marki.
Leikskipulag, leikkerfi og leikstílar
Sérstakur þáttur í þjálfun iðkenda, sem tengist hinum leikfræðilega hluta, með áherslu á grunnkynningu á mismunandi leikskipulagi, leikkerfum og leikstílum. Hvað varðar leikskipulag er áhersla á að kynna fyrir iðkendum mikilvægi þess að greina styrkleika mótherja fyrirfram og leggja leiki upp með fyrirfram ætluðu skipulagi. Hvað varðar leikkerfi er áhersla lögð á að kynna fyrir iðkendum leikkerfi er byggja á varnarleik og sóknarleik og gera þeim kleift að leika mismunandi leikkerfi eftir styrkleika mótherja. Áhersla er á 11 manna knattspyrnu þar sem mismundi leikkerfi skulu kynnt, s.s. 4-3-3, 4-4-2, 4-5-1 og 3-4-3. Hvað varðar leikstíla er megináhersla á hæga sóknaruppbyggingu, með stuttum sendingum frá aftasta til fremsta manns. Enn fremur skal iðkendum kennt að leika með lág-, mið- og hápressu.