Hjá 8. flokki barna æfa drengir og stúlkur saman. Ekki er gerður sérstakur greinarmunur á tæknilegum og leikfræðilegum þáttum líkt og í eldri aldursflokkum. Þá er ekki um að ræða eingöngu knattspyrnuþjálfun. Helstu áherslur eru á eftirfarandi atriði:
- Fyrstu skref tekin í grunnatriðum knattspyrnu.
- Fjölbreyttar æfingar sem efla almenna hreyfifærni.
- Æfingar sem reyna á fínhreyfingar og grófhreyfingar.
- Æfingar sem bæta jafnvægi, samhæfingu og styrk.
- Æfingum skipt niður í stöðvar - unnið í litlum hópum.
- Æfingum er skipt í stóran hreyfihring sem reynir á marga þætti.
- Æfingar útfærðar í gegnum leiki.
- Iðkendur læri helstu umgengnisreglur í íþróttahúsi.
- Iðkendur efli félagsþroska og læri að vinna í hóp.
- Iðkendur öðlist jákvæða upplifun af íþróttaiðkun.