Nokkur heilræði fyrir foreldra/forráðamenn:
- Einir mestu áhrifavaldar á börn í íþróttum eru foreldrar/forráðamenn. Í umsjá þeirra vaknar tiltrú barna á íþróttum, val á íþróttum, skynjun hvað hentar best, viðhorf til íþrótta mótast og markmið eru sett.
- Rannsóknir sýna ótvírætt að áhugi og stuðningur foreldra hefur áhrif á hvort barn stundar íþróttir til frambúðar.
- Rannsóknir sýna enn fremur að atriði eins og pressa, kvíði og hvernig barni líður í íþróttum koma frá foreldrum/forráðamönnum.
- Foreldrar/forráðamenn hafa gjarnan skoðanir á því hvað þeim þykir barni sínu fyrir bestu þegar kemur að íþróttum. Enn fremur hafa foreldrar mikla þörf fyrir að hlutirnir séu gerðir „rétt“, sem endurspeglast í skoðunum barnsins. Öllum er frjálst að hafa skoðanir en það er þjálfarinn sem ræður! Sé korni vafans sáð í huga barns um að þjálfarinn sé að gera rétt getur það komið ótvírætt niður á frammistöðu barns.
- Foreldrar/forráðamenn falla oft í þá gryfju að ætla að endurupplifa eigin reynslu frá íþróttum í gegnum barnið.
- Best er fyrir foreldra/forráðamenn, ætli þau sér að vera góðir „knattspyrnu-foreldrar“, að íhuga vel tilgang þess að barnið leiki knattspyrnu. Muna þarf að það er vilji barnsins sem skiptir meginmáli og að barnið hafi gaman.
- Heppilegast fyrir foreldra er að einblína á frammistöðuna, ekki úrslit eða útkomu. Faglegasta nálgun foreldra/forráðmanna er því að spyrja barn sitt spurninga eins og „hvernig gekk?“ og „var gaman?“ í stað þess að spyrja spurninga eins og „hvernig fór leikurinn?“ og „hvað skoraðir þú mörg mörk?“.
- Rannsóknir sýna að fólk með bakgrunn úr íþróttum er líklegt til að eiga velgengni að fagna í lífinu.
- Hvað geta foreldrar/forráðamenn gert til að skapa gott umhverfi fyrir barn sitt?
- Þeir skulu virða allar ákvarðanir barns inni á leikvelli, hvort sem um ræðir æfingu eða kappleik. Slíkt eykur sjálftraust barns.
- Þeir þurfa að varast að gera of miklar kröfur og nota orð eins og „skal“ og „hefði“ þegar rætt er um frammistöðu.
- Þeir þurfa að varast að ræða of mikið um úrslit, heldur einblína á frammistöðuna sem slíka og hvort draga megi af henni lærdóm.
- Þeir ættu að varast að nota orð eins og „við“ þegar rætt er um lið barnsins.
- Foreldrar ættu að brýna fyrir börnum sínum að leggja sig ávallt fram og gera sitt besta í stað þess að einblína aðeins á úrslit og útkomu.
- Mjög gott er fyrir foreldra að ræða við börn sín fyrir og eftir leiki á jákvæðum nótum, t.d. með tilliti til persónulegra markmiða. Foreldrar/forráðamenn ættu að ræða við börn sín og útskýra velgengni og það sem úrskeiðis fer. Brýnt er að rætt sé við börn á þeim nótunum að það sem úrskeiðis fór sé ekki vegna slakrar getu, heldur eigi sér aðrar skýringar, eins og skort á einbeitingu, yfirspennu, viðkomandi illa upplagður, dagsform o.s.frv.
-
Loks er athygli vakin á foreldrabæklingi KSÍ sem birtur inni á vefsíðu sambandsins, undir eftirfarandi vefslóð: http://www.ksi.is/media/fraedsla/Foreldrabaeklingur_OK_Conv.pdf.