Hollusta
Börn sem eru að vaxa þurfa holla og fjölbreytta fæðu. Hér eru nokkur atriði sem þú skalt huga að varðandi mataræðið þitt:
MorgunmaturinnMorgunmaturinn er mikilvægasta máltíð dagsins.
Góður morgunmatur getur til dæmis verið:
Hafragrautur eða ósykrað morgunkorn með mjólk, mjólkurmatur, s.s. jógúrt eða súrmjólk með ávaxtabitum, gróf brauðsneið með áleggi ásamt mjólkurglasi eða glasi af hreinum ávaxtasafa og teskeið af þorskalýsi.
LýsiðTeskeið af þorskalýsi ætti að vera sjálfsagður hluti af morgunmatnum.
Auk þess að vera góður D-vítamíngjafi eru í því hollar omega-3 fitusýrur sem eru mikilvægar fyrir vöxt þinn og þroska.
Nestið
Ef þú borðar nóg á morgnana ætti að vera hæfilegt fyrir þig að fá ávexti og drykk (vatn/mjólk) í morgunhressingu í skólanum. Þá hefur þú nægt pláss fyrir hádegismatinn.
Ef nestið er tekið með að heiman er gott að fá að vera með í ráðum þegar ávextirnir eru valdir í nestisboxið.
Fjölbreytt fæðiUndirstaða holls mataræðis er að borða fjölbreyttan mat úr öllum fæðuflokkunum á hverjum degi. Það er engin ein fæðutegund svo holl að hún veiti öll þau næringarefni sem líkaminn þarf á að halda.
Fæðuflokkarnir eru:
Korn og kornvörur, grænmeti, ávextir,
mjólk og mjólkurvörur, kjöt, fiskur,
egg og feitmeti.
Borða reglulega
Mikilvægt er að hafa reglu á máltíðum.
Borðaðu þrjár aðalmáltíðir:
Velja hollan millibita
Hér eru nokkur dæmi:

- morgunmat
- hádegismat og
- kvöldmat
Velja hollan millibita
Hér eru nokkur dæmi:
- Grænmeti, t.d. gúrkur, gulrætur, blómkál, radísur og rófur.
- Ávextir og ber, t.d. mandarínur, vínber, epli, melónur og ananas.
- Fræ og hnetur, t.d. sólblómafræ, graskersfræ, furuhnetur og möndlur.
- Gróft brauð.
- Harðfiskur.
- Hreinar mjólkurvörur og ostur.
- Vatn er besti svaladrykkurinn.
Hvíld
Hvers vegna er mikilvægt að sofa nóg?
Þú þarft að sofa vegna þess að:
Hvers vegna er mikilvægt að sofa nóg?
Þú þarft að sofa vegna þess að:
- Þér líður betur ef þú færð góðan svefn.
7–8 ára börn þurfa 10–11 klukkustundir
á hverri nóttu. - Þú stækkar í svefni.
- Svefn hjálpar líkamanum og heilanum að vaxa og þroskast og þú veikist síður.
Líkaminn græðir sár þegar þú sefur. - Þér gengur betur að læra í skólanum.
- Þú manst betur það sem þú lærir.
- Þú getur einbeitt þér betur.
- Þú átt auðveldara með að leysa verkefni og fá hugmyndir
Hreyfing
Hvað gerir hreyfing fyrir líkamann?
Hvað gerir hreyfing fyrir líkamann?
- Hjartað og lungun styrkjast, og þá hefur þú meira úthald í að t.d. ganga, hlaupa og leika þér.
- Vöðvarnir verða sterkari.
- Beinin verða sterkari og þú leggur inn í beinabankann.
- Aukinn liðleiki, snerpa og hraði.
- Hún eykur orku, einbeitingu og vellíðan.
- Þú lærir leikreglur og þér gengur betur í samskiptum.