Í öllum aldursflokkum fer fram Sérþjálfun/þrekþjálfun í einhverjum mæli. Í yngstu aldursflokkum er áhersla á liðleika en eftir því sem iðkendur eldast stigmagnast þjálfun og koma þá til skoðunar atriði eins og þol, kraftur, hraði og tækni (samhæfing). Öll áhersla er eftir sem áður að kenna framangreind atriði í gegnum leikinn, eftir því sem unnt er. Þó skal áréttað að fyrir yngstu iðkendur eru æfingar sem ganga út á samhæfingu sérlega brýnar.
Í öllum aldursflokkum fer fram persónuleikaþjálfun sem byggir á eftirfarandi grunngildum sem allir iðkendur þurfa að temja sér:
Enn fremur er áhersla lögð á að kenna iðkendum aðferðir við að setja sér markmið, auka sjálfstraust sitt og einbeitingu. Kynna skal fyrir iðkendum, einkum 5. aldursflokki og eldri, viðurkenndar aðferðir við þjálfun hugans samhliða íþróttum, s.s. með einföldum slökunaraðferðum við kvíða- og spennustjórnun, skynmyndaþjálfun, sjálftali og fleiri atriðum, sem meðal annars hafa að markmiði að stjórna tilfinningum iðkenda við mismunandi kringumstæður.
Í öllum aldursflokkum fer fram persónuleikaþjálfun sem byggir á eftirfarandi grunngildum sem allir iðkendur þurfa að temja sér:
- Öguð samskipti við þjálfara og aðra samherja frá degi til dags, þar af mikilvægi hlustunar,
- faglegan undirbúning iðkenda fyrir kappleiki, einkum í formi venja, t.d. mikilvægi mataræðis, hvíldar og að „hlusta“ á líkama sinn,
- mikilvægi þess að vera hluti af liði,
- mikilvægi þess að gagnrýna (sjálfan sig og aðra) og taka gagnrýni með jákvæðum hætti, einkum í gegnum einfalda leikgreiningu,
- mikilvægi þess að leggja sig ávallt allan fram m.t.t. til frammistöðu, ekki niðurstöðu, t.d. í formi úrslita,
- drengilega framkomu innan vallar sem utan, þar af regluna um „fair play“,
- virðingu fyrir reglum knattspyrnuleiksins, þ.á m. ákvörðunum dómara,
- virðingu fyrir samherjum og mótherjum, bæði í samskiptum með og án orða,
- virðingu fyrir eignum annarra og íþróttamannvirkjum,
- félagsvitund, þ.e. stolti að leika fyrir Knattspyrnufélagið Ægi og
- gildi þess að iðka knattspyrnu til lengri tíma litið, t.d. með tilliti til menntunar framtíðarinnar.