Rannsóknir hafa sýnt að það mikilvægasta við uppeldi barna er að foreldrar/forráðamenn verji tíma með börnum sínum og þekki foreldra vina barnanna. Knattspyrnufélagið Ægir leggur mikla áherslu á það að iðkendur séu vinir bæði innan vallar og utan.
Grundvöllur fyrir rekstri ungmenna- og íþróttafélaga er öflugt foreldrastarf. Þar sem öflugt foreldrastarf er til staðar er rekstur viðkomandi flokks yfirleitt í góðum farvegi. Þjálfari fær þann stuðnings sem nauðsynlegur er og börnin æfa betur og eru viljugri að taka þátt ef foreldrar/forráðamenn eru áhugasamir um íþróttaiðkun þeirra.
Mjög brýnt er því að foreldrar/forráðamenn sýni börnum sínum stuðning og áhuga á því sem þau eru að gera.