Nokkur heilræði til iðkendaMæta skal stundvíslega í öll verkefni og á allar æfingar. Brýnt er að láta vita ef ekki er unnt að mæta á æfingu, í kappleiki, mót og aðrar uppákomur flokksins. Í því felst virðing gagnvart öðrum og það auðveldar skipulagningu.
Borða hollan mat (líka morgunmat). Ekki borða rétt fyrir æfingu (síðasta lagi 30 mín fyrir æfingar) og muna að borða kolvetnaríkan mat eftir æfingu, t.d. gróf brauð, pasta, spagettí, kartöflur og banana. Drekka mikið af vatni. Það minnkar árangur þjálfunar ef við borðum óhollan mat. Halda skal gosdrykkjum og sælgætisáti í lágmarki.
Til að geta lagt sig 100% fram á æfingum þarf maður að vera vel hvíld/-ur, svefn er besta hvíldin. Til þess að svefninn nýtist sem best þarf að fara tiltölulega snemma að sofa og helst að vakna ekki seint. Muna þarf að það er unnt að sofa lengi en hvílast illa, t.d. með því að hafa endaskipti á sólarhring.
Vera klædd/-ur eftir aðstæðum/veðri og snyrtileg/-ur til fara. Skylt er að mæta til æfinga í íþróttafatnaði. Mælst er til þess að iðkendur mæti í fatnaði merktum Knattspyrnufélaginu Ægi við allar uppákomur á vegum félagsins.
Vera jákvæður og einbeittur, hugsa jákvætt, taka vel eftir og læra.
Þú ert að æfa til að læra og til að geta lært sem mest þarf að taka vel eftir. Því meira sem þú leggur þig fram, því meiri framfarir. Það sem þú gerir á æfingu gerir þú í leik. Ef þú gerir mistök ekki hengja haus heldur reyndu að gera betur næst.
Ávallt að ganga snyrtilega um öll íþróttamannvirki og fara eftir settum umgengisreglum, t.d. nota ruslafötur. Muna að skemmdarverk kosta peninga sem iðkandi getur þurft að greiða fyrir.
Raða skóm í skóhillur og hengja föt á snaga.
Mikilvægt að hafa allan fatnað merktan.