Pistill frá barna- og unglingaráði
Kæru foreldrar og forráðamenn
Nú er að hefjast nýtt æfinga– og keppnistímabil og barna– og unglingaráð að hefja sitt annað ár sem umsjónar– og ábyrgðaraðili með starfsemi yngri flokka Ægis.
Við teljum það hafa verið heillaskref sem tekið var á sl. ári að stofna sérstakt ráð til að halda utan um starf yngri flokkanna. Með því fyrirkomulagi er unnt að leggja sérstaka áherslu á nauðsynlegt uppbyggingarstarf í þágu ungra knattspyrnuiðkenda með þá sýn að leiðarljósi að skapa þeim jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem þeim gefst tækifæri á að efla hæfni sína í knattspyrnu og ekki síður að efla félagsþroska sinn. Til lengri tíma litið er framtíðarsýnin að síðar meir skipi þeir sér meðal þeirra bestu í meistaraflokkum félagsins.
Meginmarkmið er að stuðla að að ipkendum yngri flokka Ægis standi ávallt til boða skipulögð og markviss knattspyrnuþjálfun þar sem allir iðkendur fá verkefni við hæfi, við bestu mögulegu æfinga- og keppnisaðstæður og þar sem þeim líður vel. Í langtíma-áætlunum Ægis er gert ráð fyrir að innan sveitarfélagsins verði aðstaða til knattspyrnuiðkunnar stórbætt m.a. með byggingu knattspyrnuhús sem einnig yrði unnt að nota fyrir aðrar íþróttagreinar.
Í starfi yngri flokkanna verður einnig lögð áhersla á fræðslu og forvarnir og gott samstarf við foreldra þar sem horft verður til virkrar þátttöku þeirra í félagsstarfinu.
Búið er að ganga frá ráðningu á þremur flottum og metnaðarfullum þjálfurum sem hafa verið önnum kafin við að skipuleggja starfið framundan, stilla upp æfingatöflu, setja fram markmið og æfingaáætlanir og huga að samstarfi við nágrannafélögin í Hveragerði og Selfossi.
Bráðlega verður blásið til kynningafundar með foreldrum þar sem starfið framundan verður betur kynnt.
Með fótboltakveðju,
Barna- og unglingaráð Ægis
Lára, Anna Berglind og Kaisa